Anna, Auður og Ragna á úrtaksæfingar hjá U-16

Dean Martin valdi á dögunum leikmenn til að taka þátt í úrtaksæfingum hjá U-16 kvenna í knattspyrnu. 

Í hópnum voru þrjár Valsstelpur, þær Anna Hedda Björsdóttir Haaker, Auður Sveinbjörnsdóttir og Ragna Guðrún Guðmundsdóttir sem allar eru í 3. flokki kvenna. 

Valur.is óskar stelpunum góðs gengis á æfingunum sem fara fram helgina 20.-22. janúar næstkomandi.