Toppslagur í körfunni að Hlíðarenda í kvöld

Það verður sannkallaður toppslagur í 1. deild karla í körfubolta að Hlíðarenda í kvöld þegar Valsmenn taka á móti Fjölnismönnum. 

Fyrir leikinn munar tveimur stigum á liðunum og með sigri geta Valsmenn tyllt sér við hlið Fjölnis á stigatöflunni. 

Í byrjun vikunar gerði liðið sér lítið fyrir og lagði topplið Hattar á Egilsstöðum og verður forvitnilegt að sjá hvort Valur nái að fylgja sigrinum eftir og koma sér í enn betri stöðu í baráttunni um efsta sæti deildarinnar. 

Leikurinn hefst kl. 19:30 í kvöld og hvetur Valur.is stuðningsmenn til að fjölmenna.