Eva María til æfinga með U19

Eva María Jónsdóttir leikmaður Vals var á dögunum valin í æfingahóp U19 ára landsliðsins í fótbolta en liðið kemur saman til æfinga helgina 3.-5. mars næstkomandi. 

Æfingar fara fram undir stjórn  Þórðar Þórðarssonar þjálfara U19 kvenna og bæði verður æft í Kórnum og Egilshöll.

Valur.is óskar Evu góðs gengis og til hamingju með valið.