Fjölgreinadagar Vals

Dagana 26. febrúar til 1. mars verða haldnir fjölgreinadagar að Hlíðarenda og iðkendum félagsins á aldrinum 6-9 ára boðið að prófa æfingar í öðrum greinum.

Þannig geta körfuboltaiðkendur farið á handboltaæfingar, knattspyrnuiðkendur á körfuboltaæfingar og svo framvegis. 

Samhliða fjölgreinadögum verður vinavika innan félagsins þar sem iðkendum á öllum aldri er frjálst að bjóða vinum eða skólafélögum á æfingar vikuna 27. feb-5. mars.

Sjá einnig m.f. auglýsingu.