Glæsilegri bikarhelgi lokið - Tveir titlar í hús

Glæsilegri bikarhelgi er nú lokið þar sem Valur átti þrjú lið í úrslitum. Meistaraflokkur karla tryggði sér sigur í Coca Cola bikar karla með glæsilegum sigri á Aftureldingu í úrslitaleik. 

Á sunnudeginum var svo komið að yngriflokkum félagsins þar sem Valur átti lið í úrslitum hjá bæði 3. og 2. flokk karla. 3. flokkur karla vann FH og tryggði sér bikartitilinn en 2. flokkur karla mátti þola tap gegn sprækum Frömurum.

Valur.is óskar liðunum og félaginu í heild sinni hjartanlega til hamingju með árangurinn. 

Bikarmeistarar mfl. kk 2017.jpg

Meistaraflokkur karla - Bikarmeistari 2017 #back2back

Bikarmeistarar 3. flokkur.jpg

3. flokkur karla - Bikarmeistari 2017