Elín Metta valin í A landsliðið

Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari kvenna hefur tilkynnt 22 manna hóp fyrir leikina gegn Ungverjalandi og Búlgaríu. Leikmenn Vals í landsliðshópnum eru þær Mist Edvardsdóttir, Dagný Brynjarsdóttir, Dóra María Lárusdóttir og Elín Metta Jensen. Leikurinn við Ungverjaland fer fram á Laugardalsvelli laugardaginn 16. júní og við Búlgariu í Lovech fimmtudaginn 21. júní.