Stjarnan - Valur Pepsídeild karla

Á föstudagskvöldið n.k fara Valsmenn í heimsókn í Garðabæinn. Þar eigast við karlalið félagana og má búast við magnaðri stemmingu. Stjörnumenn þekktir fyrir ákafan sóknarleik á heimavelli og Valsmenn í miklu stuði þessa dagana. Þarna er um að ræða fyrsta leik karlaliðsins okkar á nýja "grasinu" í Garðabænum og verður fróðlegt að sjá hvernig okkar mönnum tekst að fóta sig á því. Fjölmennum í Garðabæinn og hvetjum okkar menn til dáða. Leikurinn hefst kl 20.00 á staðartíma.