Íris Ásta aftur í Val

Í dag skrifaði Íris Ásta Pétursdóttir undir tveggja ára samning við handknattleiksdeild Vals. Írís Ásta er því komin aftur heim en hún lék um árabil með Valskonum og var m.a. Íslandsmeistari 2010 og 2011 með liði Vals. Á síðasta tímabili lék hún í Noregi með liði Gjövík en hefur nú snúið aftur heim á Hlíðarenda.

Við bjóðum Írisi Ástu velkomna heim aftur og í okkar raðir.