Valur - ÍA Pepsídeild karla

Á miðvikudagskvöldið þann 20.júní komu Akurnesingar í heimsókn til okkar á Hlíðarenda. Skagamenn leika nú að nýju í deild þeirra bestu og hafa farið vel af stað.

Leikurinn var hin mesta skemmtun fyrir þá fjölmörgu áhorfendur sem mættu og lauk honum með sætum sigri okkar manna 2-1. Rúnar Már sigurjónsson skoraði bæði mörk okkar manna en fyrrum Valsmaðurinn Garðar Gunnlaugsson skoraði fyrir Skagamenn.

Nú er næsti leikur í Borgunarbikarnum á mánudag gegn Þrótti og vonandi að sem flestir mæti og styðji við liðið.

Áfram Valur.