Marteinn Högni og Sindri valdir til æfinga með U17

Gunnar Guðmundsson þjálfari U17 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu hefur valið hóp á úrtaksæfingar liðsins, en hópurinn mun æfa saman um næstu helgi. Í hópnum eru tveir leikmenn Vals þeir Marteinn Högni Elíasson og Sindri Scheving. Það er athyglisvert að Sindri sé valinn í hópinn en hann er annar tveggja í hópnum sem eru á yngra ári.