Barnagæsla á heimaleikjum

Valkyrjur ásamt iðkendum í 4 fl.kvk. munu bjóða upp á barnagæslu á heimaleikjum meistaraflokks karla og kvenna í fótboltanum í sumar. Barnagæslan er hugsuð fyrir börn á aldrinum 2-6 ára og kostar 500 kr. fyrir barnið.

Gæslan fer fram í sölum í Valsheimilinu, breytilegt í hvaða sal, og verða dýnur, boltar, púsl, leikföng og fleira í boði fyrir krakkana.

Við hvetjum fólk til að nýta sér þessa þjónustu og mæta á völlinn !

Valskveðja.