"Rauðir erum vér"

Stákarnir í 5. flokki Vals í fótbolta tóku sig til og sungu nokkur Valslög inná disk. Eitt nýtt Valslag leit dagsins ljós, einsöngvarar voru teknir upp í heimastudíói og kórinn tekinn upp í Friðrikskapellu.  Útgáfan er liður í fjáröflun fyrir N1 mótið og hefur verið skemmtilegt verkefni fyrir strákana og foreldra sem stóðu að þessu með þeim.  

Diskurinn kostar aðeins 1000 kr. og hægt að panta hann hjá olistolz@gudjono.is og villi@vax.is og hjá strákunum í flokknum. 

Einnig munu strákarnir vera með sölubás á heimaleikjum karla og kvenna í sumar - Endilega tryggið ykkur eintak af þessum frábæra geisladisk frá strákunum í 5. flokki! Hér má sjá kynningarmyndaband fyrir geisladiskinn - http://www.youtube.com/watch?v=75-4-8Q6474