Leikið í Pepsídeild og Borgunarbikar

Báðir meistarflokkar félagsins í knattspyrnu eru á faraldsfæti í dag. Meistarflokkur karla mætir liði ÍBV í Vestmannaeyjum í Pepsídeildinni í dag kl.17:00.

Hinum megin á landinu, nánar tiltekið á Egilsstöðum mætast Höttur og Valur í Borgunarbikar kvenna. Ef Valsmenn eru á ferðinni væri gaman ef þeir myndu mæta á völlinn og styðja okkar lið.