Golfmót Vals

Knattspyrnufélagið Valur er með sitt árlega mót á Urriðavelli 13. júlí.
Mótið er kjörinn vettvangur þar sem Valsmenn hittast og eiga góðan dag saman.
Allir valsmenn eru velkomnir í mótið. Konur eru sérstaklega hvattar til að taka þátt.
Skráning í mótið hefst mánudaginn 2.júlí á golf.is.
Keppnisfyrirkomulag verður punktakeppni með forgjöf og verður hámarksforgjöf karla 24 og kvenna 28. 

Undanfarin ár hefur mótið verið fullt og færri komist að en vilja.

Skráið ykkur því fljótt.

Áfram Valur
Nefndin