Agnar og Bjartur skrifa undir samning

U20 landsliðsmennirnir Agnar Smári Jónsson og Bjartur Guðmundsson hafa skrifað undir þriggja ára samning við handknattleiksdeild Vals.

Þetta er ánægjulegt fyrir félagið enda eru drengirnir framtíðar leikmenn og nú þegar farnir að láta til sýn taka með meistaraflokki Vals.

Agnar, Bjartur og Sveinn Aron eru farnir með U20 til Tyrklands þar sem þeir taka þátt í lokakeppni EM og óskum við þeim og landsliðinu góðs gengis.