Jónas Tór Næs í Val

Í dag barst Valsmönnum góður liðsstyrkur er Færeyingurinn knái Jónas Tór Næs skrifaði undir samning við Knattspyrnufélagið Val. Jónas lék með okkur á síðasta tímabili og var einn af bestu mönnum deildarinnar.

Jónas leikur í stöðu hægri bakvarðar og er frábært fyrir Valsara að vera búnir að endurheimta þennan góða dreng. Jónas ætti að vera kominn með leikheimild þegar að félagaskiptaglugginn opnar 15.júlí.

Áfram Valur