Golfmót Vals

Á föstudaginn þann 13.júlí fór fram golfmót Vals á Urriðavelli. Uppselt var í mótið og mikið fjör að vanda.

Í kvennaflokki var Guðrún Aðalsteinsdóttir hlutskörpust og í öðru og þriðja sæti voru Guðrún Kristjánsdóttir og Jenetta Bárðardóttir. Hjá körlunum var Jón R. Kristjánsson í fyrsta sæti  og í öðru og þriðja voru Anton K. Þórarinsson og Gunnsteinn Skúlason. Hér að neðan má sjá myndir af sigurvegurunum.

Golfnefnd Vals þakkar öllum þátttakendum kærlega fyrir og hlakkar til að sjá sem flesta að ári.

Áfram Valur