Valur og Samsung undirrita samstarfssamning

Á föstudag undirrituðu Knattspyrnufélagið Valur og Tæknivörur/Bræðurnir Ormsson umboðsaðilar Samsung undir samstarfssamning.

Samningurinn er til þriggja ára og verður Samsung einn af styrktaraðilum Vals. Sem fyrr hvetjum við alla Valsmenn-og meyjar til þess að versla við samstarfsaðila okkar.

Á myndinni hér að neðan undirrita framkvæmdastjóri Vals Haraldur Daði Ragnarsson og markaðsstjóri Tæknivara Björn Ragnar Björnsson samninginn.