Johanna Rasmussen til liðs við Val

Danska landsliðskonan Johanna Rasmussen sem æft hefur undanfarið með meistaraflokki kvenna í Val hefur gengið til liðs við félagið á lánssamning. Johanna mun leika með Valsstúlkum næsta mánuðinn á meðan það er frí í sænsku deildinni. Rasmussen sem er samningsbundin Kristianstad í Svíþjóð er 29 ára gömul og hefur spilað hátt í 100 landsleiki fyrir Danmörku