8.liða úrslit 3.fl.karla bikar

Strákarnir í 3. flokki eru komnir í 8. liða úrslit í bikarkeppni KSÍ og mæta þeir sterku liði Keflavíkur í kvöld kl. 20:00 strax á eftir leik MFL kvenna.

Hvetjum alla sanna Valsara til að mæta og hvetja strákana. Keflvíkingar eru með sterkt lið í þessum aldursflokki en strákarnir okkar hafa sýnt það nú undanfarið að þeir eru á mikilli siglingu og eru til alls líklegir.