2. flokkur kvenna áfram í bikarnum

Síðastliðið mánudagskvöld  áttust við í 8. liða úrslitum bikarkeppni KSÍ Reykjavíkurstórveldin Valur og KR í öðrum flokki kvenna. Þarna var spennan í algjöru hámarki, framlengt og vítaspyrnukeppni með öllu tilheyrandi. Staðan var jöfn 1-1 að loknum venjulegum leiktíma og eftir framlengingu var staðan enn jöfn 2-2 og vítaspyrnukeppni staðreynd. Mörk Vals fram að því skoruðu þær Hugrún og Erla Steina, því miður er fréttaritara ekki alveg kunnugt um hverjir tóku vítin fyrir Val annað en það að Þórdís markmaður átti stórleik, gerði sér lítið fyrir og varði víti og skoraði svo úr einu. Eins og í leik 3. flokks kk var það samt sterk liðsheild og gríðarlegur sigurvilji sem að öðru fremur skóp sigurinn. Við óskum stelpunum til hamingum með sigurinn og óskum þeim góðs gengis í framhaldinu.