Skemmtilegustu leikir sumarsins

Undanfarin ár hafa Fálkar staðið fyrir skemmtilegustu leikjum sumarsins hjá 3. og 4. flokki karla og kvenna.
Flokkarnir hafa þá fengið að spila á aðalvellinum með fullri umgjörð, heiðursgestum, boltakrökkum, liðskynningum og öllu tilheyrandi. 

Á laugardaginn kemur þann 21. júlí á 3. flokkur karla heimaleik við Sindra frá Hornafirði á Íslandsmótinu og hefst leikurinn kl. 14:00

Spilað verður á aðalvellinum og eru allir Valsarar hvattir til að mæta og styðja þessa efnilegu drengi.

Á eftir verður grillað fyrir strákana  og vonandi fagnað.
Strákarnir í 3. flokk ásamt stúlkum í 3. flokk eru svo að fara saman á Keele Cup í Englandi á mánudaginn kemur en þau verða þar í eina viku og keppa á öflugu móti.

Samsvarandi leikir fyrir 4. flokk og 3. flokk kvenna eru svo fyrirhugaðir í ágúst.