Valur - Fram á mánudag í Pepsídeild karla

Í kvöld kl.19:15 mætast Valur og Fram í 12.umferð í Pepsídeild karla. Valsmenn unnu góðan sigur í síðasta leik og hafa verið sterkir á heimavelli í sumar.

Við erum í áttunda sæti með fimmtán stig eftir fyrri umferðina en Fram er í tíunda sæti með níu stig. Það er ljóst að um hörkuleik verður að ræða og hvetjum við alla Valsara til að fjölmenna og styðja strákana til sigurs.

Fálkarnir verða á staðnum með sína ljúffengu hamborgara og pylsur frá Kjarnafæði og Valkyrjur ásamt iðkendum í 4 fl.kvk. munu bjóða upp á barnagæslu á heimaleikjum meistaraflokks karla og kvenna í fótboltanum í sumar. Barnagæslan er hugsuð fyrir börn á aldrinum 2-6 ára og kostar 500 kr. fyrir barnið. Gæslan fer fram í sölum í Valsheimilinu, breytilegt í hvaða sal, og verða dýnur, boltar, púsl, leikföng og fleira í boði fyrir krakkana. Við hvetjum fólk til að nýta sér þessa þjónustu og mæta á völlinn.