Pavel Ermolinskij í Val

KKD Vals hefur gert samning við Pavel Ermolinskij um að leika með Val næstu tvö tímabil. Samingur þessa efnis var undirritaður nú í hádeginu í Origohöllinni. Pavel hefur spilað með KR sl. 6 tímabil en þar áður lék hann sem atvinnumaður í Svíþjóð tvö tímabil, 5 tímabil á Spáni og eitt í Frakklandi.

Uppeldisfélag Pavels er Skallagrímur. Pavel hefur leikið yfir 70 leiki með A landsliði Íslands auk þess sem hann spilaði með yngri landsliðum. Pavel hefur unnið til flestra einstaklingsverðlauna og liðsverðlauna sem eru í boði í körfuboltanum á Íslandi. Hann var leikmaður ársins árin 2011 og 2015 og í liði ársins fjórum sinnum á síðustu 8 tímabilum í deildinni.

Valur hefur undanfarin ár verið að byggja upp körfuboltann innan félagsins. Iðkendum hefur fjölgað jafnt og þétt sl. misseri og í dag eru virkir körfuboltaiðkendur yfir 300 í félaginu. Öflugir þjálfarar hafa verið ráðnir til að sinna starfinu í yngri flokkunum. Það er mikilvægt að hafa öfluga meistaraflokka innan félagsins sem hvatningu fyrir unga iðkendur sem stefna hátt.

Við hlökkum til að njóta krafta Pavels Ermolinskij á Hlíðarenda næstu árin og lítum á komu hans sem stórt skref til frekari uppbyggingar körfunnar í Val.