PJ Alawoya í Val - Leikur með liðinu í kvöld

PJ Alawoya hefur skrifað undir samning við KKD Vals um að leika með liðinu út þetta tímabil í Dominosdeildinni.

Hann er kominn til landsins og hefur fengið leikheimild og er því á skýrslu í sínum fyrsta leik með Val í kvöld þegar liðið sækir Grindavík heim. PJ er íslenskum körfuknattleiksmönnum að góðu kunnur.

Hann varð Íslands- og bikarmeistari með KR árið 2017 og var með 15,8 stig, 8,3 fráköst, 1,7 stoðsendingar og 20,5 framlagspunkta í leik. Hann spilaði síðan með Tindastóli eftir áramótin á síðasta tímabili og var þá með 16 stig, 8,4 fráköst, 1,4 stoðsendingar og 20,2 framlagspunkta að meðaltali í leik.

Ágúst Björgvinsson um PJ: "Við erum gríðarlega ánægð að fá PJ til okkar. Hann þekkir körfuboltann sem er spilaður hérna og það er mjög mikilvægt fyrir okkur. Hann gerði mjög vel hjá KR þar sem hann varð bæði Íslands- og bikarmeistari með liðinu. Hann var síðan mjög traustur með Tindastóli í vor." 

PJ: " Ísland, ég er kominn aftur! Ég er afar þakklátur Val og Gústa þjálfara fyrir að fá tækifæri til þess að gera það sem ég elska mest sem er að spila körfubolta. Valur er stórt félag og ég hlakka til tímabilsins!"

Á meðfylgjandi mynd má sjá PJ í leik með Tindastóli á síðasta tímabili. Ljósmyndari: Hjalti Árna (Feykir.is).