KR - Valur 4. liða úrslit Borgunarbikars kvenna

Á föstudagskvöldið n.k 27.júlí eigast við KR og Valur í 4. liða úrslitum Borgunarbikars kvenna. Leikurinn fer fram í Frostaskjóli og hefst kl. 19:15.

Bikarleikur á milli þessara erkifjenda getur aldrei orðið annað en hin besta skemmtun og má reikna með hörðum en prúðmannlega leiknum leik. Veðurspáin er flott og völlurinn væntanlega góður þannig að það er óhætt að spá markaregni í Vesturbænum á föstudagskvöldið.

Nú fjölmennum við og hjálpum stelpunum í átt að sínum 14. bikarmeistaratitli.