Sindri valinn í U17 ára landsliðið

Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 ára karla, hefur valið 18 manna hóp til þess að taka þátt í Norðulandamóti drengja sem fram fer í Færeyjum 5. - 12. ágúst næstkomandi.  Við Valsmenn eigum einn leikmann í þeim hópi og óskum Sindra Scheving, leikmanni 3.flokks, til hamingju með að hafa verið valinn í hópinn.

Ísland er í riðli með Svíþjóð, Færeyjum og Dönum.