Valur - Þór/KA í Pepsídeild kvenna - Frítt inn

Stórleikur í Pepsídeild kvenna þriðjudaginn 31.júlí kl. 18:00.

Það er mikilvægt að Valsarar fjölmenni  á völlinn á þriðjudag og styðji sínar konur. Þetta er leikurinn sem að gæti sett þær í baráttuna um Íslandsmeistaratitilinn fyrir alvöru og því gríðarlega mikilvægt að 12 maðurinn komi sterkur inn.

Valkyrjur bjóða á leikinn og því ókeypis inn. Mætum öll og hvetjum stelpurnar okkar til sigurs og njótum góðrar knattspyrnu með allri fjölskyldunni.

Fálkarnir verða á staðnum með sína ljúffengu hamborgara og pylsur frá Kjarnafæði og Valkyrjur ásamt iðkendum í 4 fl.kvk. munu bjóða upp á barnagæslu á heimaleikjum meistaraflokks karla og kvenna í fótboltanum í sumar. Barnagæslan er hugsuð fyrir börn á aldrinum 2-6 ára og kostar 500 kr. fyrir barnið