Íris Björk Símonardóttir hanknattleikskona ársins hjá HSÍ

Íris Björk Símonardóttir, markvörður Íslands- og bikarmeistara Vals var á dögunum valin handknattleikskona ársins af HSÍ.

Íris Björk gekk til liðs við Val sumarið 2018 og var einn burðarása Hlíðarendaliðsins sem varð þrefaldur meistari á síðasta keppnistímabili. Enda var keppnistímabilið einstaklega glæsilegt hjá Íris sem uppskar laun erfiðis síns í mótslok.  Hún valin besti leikmaður Olís-deildar kvenna, einnig besti markvörður deildarinnar auk þess sem henni hlotnaðist Sigríðar-bikarinn sem mikilvægasti leikmaður Olís-deildarinnar. Síðast en ekki síst var Íris Björk valinn mikilvægasti leikmaður úrslitakeppni Olís-deildarinnar. 

Íris Björk hefur leikið 71 A-landsleik og skorað í þeim fjögur mörk. Fyrsti leikurinn var gegn Færeyjum á Eiði 21. maí 2005. Hún var annar tveggja markvarða íslenska kvennalandsliðsins þegar það tók fyrst þátt í lokakeppni stórmóts á EM í Danmörku fyrir níu árum.  Eftir nokkurt hlé frá landsliðinu gaf Íris Björk kost á sér í landsliðið á nýjan leik í haust þegar undankeppni EM hófst. Stórbrotin frammistaða hennar í leiknum gegn þáverandi heimsmeisturum Frakka á Ásvöllum í undankeppni EM í lok september vakti verðskuldaða athygli út fyrir landssteinana. 

Íris Björk er 32 ára gömul og tveggja barna móðir. Hún hefur ekki látið barneignir slá sig út af laginu heldur mætt sterkari en áður til leiks að þeim loknum.  Íris Björk lék með Gróttu frá barnæsku og upp í meistaraflokk. Árið 2009 gekk hún til liðs við Fram hvar hún lék ársins 2012 og varð bikarmeistari með Safamýrarliðinu 2010 og 2011. Hún skipti yfir til uppeldisfélags síns, Gróttu, 2012 og varð Íslands- og bikarmeistari með liðinu 2015 og Íslandsmeistari á ný árið eftir. Íris Björk söðlaði um sumarið 2018 og gerðist liðsmaður Vals.

Íris Björk er fyrirmynd fyrir yngri jafnt sem eldri handknattleiksiðkendur, hvort heldur  utan vallar eða innan.