Joe Tillen í Val

Knattspyrnumaðurinn Joe Tillen skrifaði í dag undir tveggja ára samning við Knattspyrnufélagið Val.

Tillen kemur til okkar frá Selfossi en hann hefur einnig leikið með Fram hér á landi. Tillen er 25. ára gamall kantmaður frá Englandi og lék m.a. með unglingaliði Chelsea áður en hann kom til Íslands árið 2008. Það er ljóst að með tilkomu hans styrkist lið okkar fyrir lokaátökin í Pepsídeild karla.