Aðalheiður Hreinsdóttir framlengir í handboltanum

Aðalheiður Hreinsdóttir er búin að gera tveggja ára  samning  við handknattleiksdeild Vals.  Aðalheiður getur spilað margar stöður á vellinum bæði í sókn og vörn og frábært að Valur njóti krafta hennar fyrir komandi átök. Aðalheiður hefur spilað með öllum yngri landsliðum Íslands og er sterkur leikmaður bæði innan og utan vallar.