Lárus Helgi skrifar undir

Lárus Helgi Ólafsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við handknattleiksdeild Vals. 

Lárus er uppalinn í ÍR en hefur spilað undanfarin ár með Gróttu, hann hefur sannað sig sem einn af betri markmönnum deildarinnar og mun samvinna Hlyns og Lárusar skila einu sterkasta markvarðapari landsins. Þess má geta að nýverið samdi einnig Þorgrímur bróðir Lárusar við Val.

Við bjóðum Lárus velkominn að Hlíðarenda.