Valur - Breiðablik Pepsídeild karla

Í dag miðvikudag kl.19:15 mætast í 14.umferð Valur og Breiðablik í Pepsídeild karla. Valsmenn unnu góðann sigur á Selfossi í síðustu umferð og Blikar stöðvuðu sigurgöngu Eyjamanna.

Valsmenn eru í áttunda sæti með 18.stig en Blikar eru í sjötta sæti með stigi meira. Það er ljóst að um hörkuleik verður að ræða og hvetjum við alla Valsara til að fjölmenna og styðja strákanna.