Stjarnan - Valur Pepsídeild kvenna

Í dag fimmtudag kl.19:30 mæta Valsstelpur í Garðabæinn til að kljást við Stjörnuna. Leikir þessara liða hafa í gegnum tíðina verið hin mesta skemmtun og engin ástæða til að ætla að svo verði ekki að þessu sinni.

Valsstelpur eru í fimmta sæti með 20.stig en Stjarnan er í öðru sæti með 26.stig.

Við hvetjum alla Valsara til að fjölmenna í Garðabæinn og styðja stelpurnar.