Handboltaskólinn í fullum gangi

Handboltaskólinn er í fullum gangi þessa dagana og krakkarnir standa sig mjög vel! Leggja hart að sér til þess að undirbúa sig fyrir komandi átök á handboltavellinum í vetur og svo eru jú einhverjir að stíga sín fyrstu skref. 

Það er virkilega gaman að fylgjast með þessum framtíðarstjörnum okkar  !