Úrtökumót stúlkna fæddar árið 1997

Um helgina verður haldið á Laugarvatni úrtökumót stúlkna, fæddar 1997.

5 leikmenn 3.flokks kvenna í Val hafa verið valdar til þess að taka þátt og erum við mjög stolt af stelpunum. 

Þetta eru þær Málfríður A. Eiríksdóttir, Nína Kolbrún Gylfadóttir, Selma D. Björgvinsdóttir, Sigrún B. Sigurðardóttir og Þorgerður Einarsdóttir. Í myndasafni má sjá allar stúlkurnar nema Málfríði.

Við óskum þeim að sjálfsögðu til hamingju og vonum að þeim gangi vel um helgina!