Valur - KR í Pepsídeild kvenna

Stórleikur í Pepsídeild kvenna þriðjudaginn 14.ágúst kl. 19:15.

Að þessu sinni eru það KR-konur sem koma til okkar á Hlíðarenda. Valsstúlkur unnu glæsilegan sigur á Stjörnunni í síðasta leik og það er mikilvægt að Valsarar fjölmenni á völlinn á þriðjudag og styðji sínar konur gegn KR. Valur situr í fimmta sæti með 23.stig en KR er í níunda með 11. stig eftir 13.umferðir.

Fálkarnir verða á staðnum með sína ljúffengu hamborgara og pylsur frá Kjarnafæði og Valkyrjur ásamt iðkendum í 4 fl.kvk. munu bjóða upp á barnagæslu á heimaleikjum meistaraflokks karla og kvenna í fótboltanum í sumar. Barnagæslan er hugsuð fyrir börn á aldrinum 2-6 ára og kostar 500 kr. fyrir barnið