Hin hliðin

Nafn, fæðingardagur og ár ? Þórdís María Aikman 24.08.93

Gælunafn ? Aikman

Uppáhaldsmatur ? Sushi, Saffran eða Serrano

Hvernig skóm spilar þú í ? Adidas F50

Hvað varstu gömul þegar þú byrjaðir að æfa fótbolta ?   9 ára og 10 daga gömul !!

Fylgist þú með öðrum íþróttum ?  Aðallega handbolta, annars finnst mér samhæfðar dýfingar líka einstaklega skemmtilegt áhorf

Skemmtilegt atvik úr fótboltaferð ? Akureyrarferðin síðastliðinn vetur í heild sinni,  snjóþotuferðin niður Kaldbak stendur þó hæst upp úr þar !

Hvaða lag kemur þér í gírinn fyrir leik ? Tacabro er ofarlega á lista þessa stundina !

Hvar líður þér best ?  Líður einstaklega vel inná vellinum, annars er heima alltaf best

Fallegasti/fallegasta knattspyrnumaðurinn/konan í meistaraflokki í Val ?  Það er hin ómótstæðilega Dóra María

Hver er mesti sprellarinn í hópnum ?  Það eru allar búnar að segja Rakel svo að ég ætla að breyta til og segja Mist

Hver er efnilegasti Valsarinn í fótbolta ?  Allar 95 eru löngu hættar að vera efnilegar og orðnar góðar svo ég segi Nína Kolbrún í 3 flokki.

Afhverju Valur ?   Metnaður í einu og öllu, fyrirmyndar umgjörð og frábærir samherjar