Skemmtilegustu leikir sumarsins
Laugardaginn n.k 18 Ágúst kl 14.00 fer fram leikur í leikjaröðinni "skemmtilegustu leikir sumarsins" þá eigast við 3 flokkur kvk Vals og og IBV. Hörkubikarleikur sem háður verður á Vodafonevellinum með flottri umgjörð í umsjá Fálkana.
Við skorum á alla Valsara að byrja menningarhátíðina á því að kíkja á Hlíðarenda og hvetja framtíð kvennaboltans hjá Val til sigurs.
Fálkarnir verða á sínum stað með grillaðar pylsur til sölu og eins og venjulega fer allur ágóði af því til styrktar barna og unglingastarfi Vals. Full ástæða til að mæta, splæsa menningarpylsu á fjölskylduna og njóta góðrar knattspyrnu.