Húsvarsla í Vodafonehöllinni

Knattspyrnufélagið Valur auglýsir eftir umsóknum um starf við húsvörslu.  Um er ræða kvöldvaktir á Hlíðarenda þar sem vinnutíminn er frá 16:00 til 23:00 virka daga, einnig er um að ræða helgarvaktir.

Starfið felur í sér m.a. að ganga frá og setja upp sali á Hlíðarenda. Viðkomandi þarf að vera stundvís, samviskusamur, jákvæður og vinnusamur. Frekari upplýsingar og umsóknir óskast sendar á hdr@valur.is og er umsóknarfrestur til 31.ágúst.