Boltaskóli - íþróttaskóli barna

Boltaskólinn - íþróttaskóli barna

Nú í vetur, sem og þá síðustu, verður í boði Boltaskóli Vals fyrir yngstu íþróttagarpana okkar.  Við höfum fengið til liðs við okkur tvo reynslubolta í hlutverk skólastjóra, þau Ragnar Vignir og Sigrúnu Brynjólfsdóttur.  Þau eru mjög reynd þegar kemur að þjálfun og íþróttakennslu fyrir yngstu krakkana og það verður án efa mikið fjör hjá þeim í vetur í alls kyns leikjum og æfingum.

Skráning er hafin og við mælum með að allir sem áhuga hafa skrái sig sem fyrst í gegnum skráningakerfið okkar!