Yngsta bikarlið sögunar ?

Talnaglöggir Valsarar hafa reikna það út að meðalaldur liðsins sem að leikur til úrslita í Borgunarbikar kvenna fyrir hönd knattspyrnufélagsins Vals sé 19,78 ár !

Elstu menn muna ekki eftir að svo ungt lið hafi nokkurntíman spilað úrslitaleik í bikar á Íslandi og þarafleiðandi ekki unnið heldur, og jafnvel ekki í heiminum. Það er því "næsta víst" að Valsstúlkur muni skrá nafn sitt í sögubækurnar hvernig sem að leikurinn fer.

Við hvetjum alla Valsara til að mæta á leikinn og hvetja liðið okkar, stuðningur áhorfenda getur svo sannarlega skipt sköpum í leik sem þessum.