Íþróttafulltrúi

Knattspyrnufélagið Valur auglýsir starf íþróttafulltrúa laust til umsóknar. Við erum að leita að skemmtilegum og hæfileikaríkum einstaklingi til að bætast í hóp okkar á skrifstofu félagsins. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni:

  -   Samskipti við sérsambönd.

  -   Ráðning þjálfara.

  -   Samskipti við foreldra og iðkenndur - foreldraráð.

  -   Gerð æfingatafla.

  -   Umsjón með æfingagjöldum.

  -   Umsjón með þróun iðkenndafjölda.

  -   Samskipti við hverfisskóla.

  -   Ritstjórn heimasíðu

  -   Dómaramál

 

Hæfniskröfur:

-          Frumkvæði og sjálfstæði

-          Almenn tölvufærni

-          Reynsla af sambærilegu starfi kostur

-          Háskólagráða

-          Hreint sakavottorð

Annað:

Umsóknarfrestur er til 31.ágúst 2012. Umsókn ásamt ferilskrá óskast sent á hdr@valur.is

Gildi Vals eru: Ábyrgð, metnaður, heilbrigði og lífsgleði