Æfingatímar fyrir veturinn 2012-2013

Nú fer vetrarstarfið okkar senn að hefjast fyrir tímabilið 2012-2013 og eru æfingatöflurnar óðum að taka á sig rétta mynd. Athugið þó að einhverjar breytingar gætu átt sér stað á næstunni.  Æfingataflan fyrir handbolta og körfubolta verður aðgengileg undir "börn og unglingar" í dag en æfingatímar fyrir fótboltann koma inn á næstu dögum.

Þjálfarar okkar eru á fullu að undirbúa veturinn og bíða spenntir eftir gömlum sem nýjum iðkendum hjá Val.  Við hvetjum alla nýja til þess að koma og prófa.

Fótboltasumrinu lýkur nú á næstu dögum.  Við hvetjum iðkendur og foreldra til þess að kynna sér þær breytingar sem verða á æfingum næstu vikurnar þar sem skólastarfið er byrjað og það gæti haft áhrif á einhverja æfingatíma.

 

Líf og fjör og áfram Valur !