Flottur árangur hjá 6.flokki karla

Í gær lauk keppni í Íslandsmóti 6.fl kk. Valur hefur staðið sig gríðarlega vel í þessum aldursflokki. Síðustu daga fór fram úrslitakeppni hjá 6.fl þar sem Valur átti hvorki meira né minna en fjögur lið í úrslitum. Það er út af fyrir sig frábær árángur.

A-lið Vals fór lengst í keppninni af liðum Vals eða alla leið í úrslitaleik þar sem liðið tapaði 2-0 fyrir Víkingum í hörkuleik. Það var mjög gaman að fylgjast með strákunum sem spila flottan fótbolta og lögðu sig alla fram í verkefnið. Við getum verið stolt af okkar mönnum og það má með sanni segja að það verður gaman að fylgjast með þessum strákum í framtíðinni.

Þjálfari flokksins er Andri Fannar Stefánsson.