Stjarnan bikarmeistari

Stjarnan úr Garðabæ varð í dag bikarmeistari í fyrsta sinn í sögu félagsins eftir sigur á Val 0-1. Leikurinn var hin mesta skemmtun og opinn allan tímann. Stjörnustúlkur höfðu þó betur að lokum með marki frá fyrirliða sínum Gunnhildi Yrsu Jónsdóttur.

Um leið og við óskum Stjörnunni til hamingju með bikarinn erum við Valsarar gríðarlega stoltir af Valsstúlkum sem eru frábærar og eiga svo sannarlega framtíðina fyrir sér.