3.flokkur karla í bikarúrslit

Í gær áttust við í undanúrslitum bikarkeppni karla í 3.flokki Valur og Breiðablik. Leikurinn var hin mesta skemmtun og ljóst að mikill efniviður er í báðum liðum.

Breiðablik skoraði snemma leiks og leiddi 0-1 í hálfleik. Valsmenn komu sterkir og ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og unnu að endingu frábærann 2-1 sigur á firnasterku liði Breiðabliks. Glæsilegur árangur og sigur hjá drengjunum sem eru nú komnir í úrslitaleik bikarkeppninnar.