Æfingar hefjast 3. september

Æfingar í handbolta og körfubolta hefjast skv. æfingatöflu næstkomandi mánudag 3.september.  Við bjóðum alla iðkendur, nýja sem gamla, velkomna inn í nýtt tímabil og óskum þeim góðs gengis.  Ráðnir hafa verið frábærir þjálfarar á alla flokka og hlökkum við til komandi tímabils.

Verið er að ganga frá ráðningu á þjálfurum í fótbolta og mun sú vinna klárast á næstu dögum.  Því er æfingataflan vetrarins ekki alveg áreiðanleg eins og staðan er í dag en hún verður uppfærð um leið og upplýsingarnar eru á hreinu.  Sumartímabilinu er senn að ljúka og munu æfingar hefjast á fullu um miðjan september.  Við biðjum þó foreldra og iðkendur að fylgjast með upplýsingum frá þjálfurum um æfingar næstu daga.