Þjálfari 7.fl.kv fótbolta

Knattspyrnudeild Vals leitar að hressum og góðum þjálfara fyrir 7.flokk kvenna tímabilið 2012-13.  Æskilegt er að þjálfarinn hafi náð 25 ára aldri og hafi reynslu af því að vinna með börnum.  Einnig þarf hann að vera skipulagður, metnaðarfullur og jákvæður einstaklingur með Valshjarta.

Áhugasamir beðnir um að hafa samband við yfirþjálfara kvennaflokkana, Gunnar Borgþórsson (gunnar@valur.is).