Vetraræfingar og skólarúta

Viljum bara minna á að æfingaáætlun vetrarins hefst næstkomandi mánudag 3.september.  Vil biðja alla foreldra um að athuga hvort breytingar hafi verið gerðar á æfingatímum en einhverjar tilfæringar hafa átt sér stað.  Í því sambandi er hægt að hafa samband við þjálfara beint.

Skólarúta Vals úr frístundaheimilunum hefst svo 10.september.  Nauðsynlegt er að skrá börnin í gegnum skráningakerfi Vals, Nóra.  Að öðrum kosti fara börnin ekki með rútunni.